Við bjóðum upp á leigu á krókheysisgámum af öllum stærðum ásamt snjómokstri og hálkueyðingu — allt frá einstaklingum til stórra fyrirtækja.
Við sérhæfum okkur í leigu á krókheysigámum — bæði opnum og lokuðum. Hringdu og við komum með gáminn til þín á sólarhring.
Hentar vel undir tilfallandi rusl vegna framkvæmda — timbur, járn, óflokkað sorp og annað gróft efni sem ekki þarf að loka.
Lokaðir krókheysigámar henta vel fyrir almennt sorp og endurvinnanlegan úrgang — bylgjupappír, plast og fleiri efni sem þarf að vernda.
Sérstaklega hannaður fyrir þyngri úrgang eins og múrbrot, flísar, jarðveg, gler og önnur steinefni sem krefjast sterkari gáms.
Við tryggjum öryggi þitt og gesta þinna með faglegri snjóhreinsun og hálkueyðingu — hröðum viðbrögðum og vel búnum tækjum.
Faglegur snjómokstur á bílastæðum, gangstígum, innkeyrslum og verksvæðum. Við bregðumst fljótt við og hreinsum svæðið þannig að það sé aðgengilegt og öruggt.
Við meðhöndlum svæðið þannig að það sé öruggt fyrir alla. Forvarnar lausnir eða viðbrögð eftir þörfum.
Við höfum einfaldað ferlið svo þú getir pantað gám eða þjónustu á nokkrum mínútum.
Hringdu í okkur eða sendu fyrirspurn. Við ráðleggjum þér um bestu lausnina.
Við sendum þér skýrt og gegnsætt tilboð. Engin falin gjöld eða óvæntar hækkanir.
Gámurinn kemur á þinn stað á sólarhring. Við sjáum um allt — þú þarft ekki að gera neitt.
Þegar verkinu er lokið sjáum við um að sækja gám eða ljúka vetrarþjónustu — þægilegt og án fyrirhafnar fyrir þig.
"Ég fékk gám afhentan á þeim sama degi og ég pantaði. Frábær þjónusta og samkeppnishæft verð. Mæli eindregið með Litlu Gámaleigunni."
"Við notuðum þjónustu þeirra í snjómokstri í gegnum veturinn. Alltaf á tíma, alltaf vandvirkir. Þetta er fyrirtæki sem maður getur treyst."
"Geggjuð þjónusta. Hringdi í þá 21:30 á föstudagskvöldi og þeir mættu með gám hálftíma síðar."
Litla Gámaleigan er fjölskyldufyrirtæki í eigu Gunnars og Einars — tveggja vina sem hafa unnið saman í gámabransanum síðan 2016.
Eftir tæp fimm ár í þjónustu annars fyrirtækis vissum við að við gætum gert þetta betur, hraðar, þægilegra og án óþarfa fyrirhafnar fyrir viðskiptavininn. Árið 2021 tókum við skrefið og stofnuðum Litlu Gámaleiguna með það eina markmið í huga að bjóða upp á persónulega og áreiðanlega þjónustu þar sem viðskiptavinurinn kemur alltaf fyrstur.
Við byrjuðum með ekkert nema hugmyndina og metnaðinn til að gera hlutina betur. Við sáum möguleika þar sem aðrir sáu rusl, einn bilaður bíll og þrír ónýtir gámar urðu grunnurinn. Með eigin höndum löguðum við þá og þannig varð Litla Gámaleigan til.
Þegar þú hringir í okkur ert þú að tala beint við eigendurna. Engin milliliður, enginn biðlisti, bara fljótleg og fagleg þjónusta. Við erum aðgengileg lengur en flest fyrirtæki í greininni og bregðumst fljótt við þegar þú þarft á okkur að halda. Hvort sem um er að ræða lítið verk eða stórt, leggjum við okkur jafn mikið fram í hvert skipti.
Markmið okkar er ekki bara vöxtur heldur ábyrgur vöxtur. Við stefnum að því að vera áfram fremst í flokki þegar kemur að þjónustu og vandvirkni, ásamt því erum við stöðugt að bæta við okkur gámum og uppfæra tæki og búnað til að geta boðið upp á enn betri þjónustu.
Gæði og áreiðanleiki í hvert skipti.